Fokk shit
Mig langar að leggjast niður og ekki standa aftur upp næstu vikurnar. Þreyta á þessu stigi ætti að vera bönnuð. En ég þarf að mæta í vinnuna alla næstu viku og fara í ökumat og læra aftur að keyra á 30 í 30 götum. Svo fer ég á Bryggjuhátíð á Stokkseyri næstu helgi. Svo fer ég í vinnuna í 3 daga og þá er ég búin út sumarið. Ljúfa líf. Svo fer ég til Englands og reyni að komast frá Stansted til Brighton alein með lest. Fokk shit. Þeir sem hafa setið með mér í bíl í Reykjavík vita að áttaskyn mitt og ratvísi er í lágmarki. Ég á eftir að enda í Skotlandi eða fara óvart til Frakklands. Ég rétt kemst frá Vesturbænum til Breiðholts.
Ég er ánægð að Ítalía vann HM og mig langar að vita hvað dúddinn sagði við Zidane.
Írskir dagar á Akranesi voru kúl.
Í vinnunni í dag sagði ég brandara, hann hljómaði svona:
A: Hey viltu koma til Hawaii?
B: Ha? Why?
Mánudagsgleði gleði gleði
Ég er ánægð að Ítalía vann HM og mig langar að vita hvað dúddinn sagði við Zidane.
Írskir dagar á Akranesi voru kúl.
Í vinnunni í dag sagði ég brandara, hann hljómaði svona:
A: Hey viltu koma til Hawaii?
B: Ha? Why?
Mánudagsgleði gleði gleði
<< Home