Turkey beibí!
Ég hef risið upp frá Eftir-Tyrkland svefninum mínum, myndirnar eru komnar á netið, fötin úr töskunni og ég hef verið sett í málarastörf þar til skólinn byrjar aftur. Mamma vakti mig í dag, ekki Habbý eða Lena eða Magga (herbergisfélagar for life), ég hef klárað snickersið sem ég byrjaði á í flugvélinni á leiðinni heim og ég fékk mér rúgbrauð í morgunmat. Heiða er á Austurvelli að sóla sig í ,,góða veðrinu" og ég var að lesa e-mail um sögubók fyrir eftir jól.
Ég er víst komin heim.
Takk fyrir mig elsku litlu tyrklandsbeibíin mín, þið vitið hver þið eruð, my special friends!
<< Home