Hahaha
Hvað gerist ef þú hnerrar óvænt?
Þriðja hver kona á við áreynsluþvagleka að stríða-kynntu þér grindarbotnsþjálfa á femin.is
Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér í dag hvort ég sé að verða of fullorðin. Stelpa á leikskólanum spurði mig árla morguns hvort ég væri unglingur, það fannst mér ég nú ekki vera. Á hinn bóginn vakti það hjá henni mikla kátínu þegar ég sagðist vera nokkuð viss um að ég væri orðin fullorðin. Við áttum því miður erfitt með að skilgreina ástand mitt og komumst ekki að neinni niðurstöðu. Síðar um daginn fór ég svo til heimilislæknis míns sökum kvefs, þaðan gekk ég út með lyfseðil upp á sýklalyf og tíma hjá nýrnasérfræðingi vegna háþrýstings. Þetta þykja mér nú töluverð ellimerki, en svo fór ég að googla háþrýsting og er ég skalf úr ótta við hugsanlega blindu, heilablæðingu eða hjartabilun rak ég augun í auglýsingu frá femin.is og tók gleði mína á ný. Fullorðnum konum finnst svonalagað nefnilega ekki fyndið.
Stelpur! Hvurslags lífi er lifað án hláturs og hnerra? Skellið ykkur á Smart Balls grindarbotnsþjálfa í dag og hefjið nýtt líf án pissublautra nærbróka!
<< Home