Síðasta vor og sumar var ég öllum stundum á leikskólanum Mánabrekku og montaði mig ósjaldan af því hve sterkbyggð ég væri með ónæmiskerfið alveg í botni. Veiktist aldrei af reglubundnum pestunum sem ganga yfir bælið sem Mánabrekka er. Nú hef ég komist að því að hið sama gildir greinilega ekki um mánudagsstopp mín á leikskólanum. Gærdagurinn fór í fátt annað en að heyra um hósta, rennandi nef, svefnleysi og hálsbólgu en auðvitað hafði ég engar áhyggjur af þessu fullviss um að standast þennan kvefstorminn af mér sem aðra áður. Í morgun vaknaði ég svo viðbjóðslega kvefuð með hita í þokkabót, þau eru kannski krúttleg börnin en það er samt þeim að kenna að mér líður illa. Lúmsku púkar.
Síðustu helgi gat ég hins vegar kennt sjálfri mér um annars konar veiki sem ég lagðist í. En af öllu má lærdóm draga og hér eftir veit ég að bjórþambskeppnir ber að varast. Þó þær geti verið afskaplega skemmtilegar..
Auk þessa alls hef ég líka barist við einar verstu harðsperrur seinni ára síðustu daga, sem er vandræðalegt þar sem ég er í leikfimitímum með konum upp að sextugsaldri sem blása ekki úr nös í pallaæfingunum.
Jæja ég segi þetta gott héðan úr efstaleitinu, takk fyrir lesturinn, ef þið hafið einhverjar góðar fréttir má senda þær á godarfrettir@ugggla.is
Heldur betur þarf maður á gleðifregnum að halda þessa dagana og próftafla jólaprófanna er aldeilis ein af þeim. 3. desember - Gagnagreining: Sambönd og fylgnistuðlar 5. desember - Smáríki í Evrópu: Veikleikar, staða og áhrif 10. desember - Stjórnmálaflokkar, samtök og lýðræði 15. desember - Evrópusamvinna
Ég klára prófin daginn fyrir afmælið mitt! Þetta er ein fallegasta próftafla sem ég hef nokkurn tíma séð, með hliðsjón til uppröðunar, tímasetningar og fagurfræði er þetta bara yndislegt í alla staði.
Nú er ég glöð og ánægð.
Ætlaði að skrifa eitthvað mega uppbyggjandi þjóðernisröfl en ákvað að sleppa því og segi því bara: Áfram Ísland! Þetta er hvort sem er ekki í fyrsta sinn sem við verðum gjaldþrota, nú þurfum við bara eina heimstyrjöld til og þá verðum við moldrík aftur!
Update: Guð minn almáttugur hvað hafa þessir aðilar með mín skrif að gera, nú á greinilega að herða tökin...
8 October 08:21 Skov og Naturstyrelsen, Copenhagen, Staden Kobenhavn, Denmark
8 October 17:23 National Energy Authority of Iceland, Reykjavík, Gullbringusysla, Iceland
Hér með vil ég benda formlega á að ég,Guðrún Rós Árnadóttir, hef aldrei tekið þátt í skógarhöggi né öðrum skipulögðum ósongatsstækkunum og styð alla nýtingu íslenskra orkuauðlinda. Látið mig nú í friði þið þarna!