Hvað gerðir Þú um helgina?

27 June 2006

Bangsi og kjúklingur


Skemmtilegasta barnaefni í Heimi er Bamse og Kylling.
Í gær festi ég golfkerru á grasþúfu ofan á Arnarhóli, það var stuð. Í dag rólaði ég mér og fór í nútíma vegusalt og lék mér með samankuðlaða hanska. Krakkar í dag eru latir, þeir nenna ekki að vega salt svo það er gormur á miðju vegasaltinu og þeir þurfa ekkert að gera neitt nema að sitja. Það var ekkert til svona þegar ég var krakki.

posted by Gugga Rós at 10:43 pm |

13 June 2006

C to the elebrity


Blaðið er nú orðið mitt uppáhaldsblað. Jim Smart kætti mig umtalsvert í morgun þegar ég kom sjúgandi upp í nefið með strepsils í munninum inn í eldhús og fann þetta á forsíðu Blaðsins. Nú er ég orðin alvöru celebrity. Skítt með að Sigga hafi verið í Marie Claire og Soffa í öllum tískublöðum landsins. ÉG var í BlaðINU. Sem er greinilega mun betra og merkilegra. Ég fæ líka fallega umsögn hjá þeim, Blómarós í beði og ung snót er meðal annars notað til að lýsa mér. Ok það er það eina sem er notað til að lýsa mér. Samt kúl.
Gærdagurinn var góður dagur. Jim Smart tók mynd af mér, Halli átti afmæli, fór út að borða á eldsmiðjuna, ég rústaði Halla, Gauja, Möggu og síðast en ekki síst Herdísi í keilu...góður dagur. Ég er mjög stolt af því síðasta á listanum. Já þau gerðu grín að mér fyrir að nota léttu fjólubláu kúluna en sá hlær best sem síðast hlær. Sérstaklega þegar sá sem síðast hlær nær fellu í lokin og undirstrikar glæsilegan sigur.
Í dag er ég hins vegar heima veik. Alheimurinn virðist hins vegar vera á mínu bandi. Sigga bauð mér í afmælið sitt í morgun og Blaðið fjallaði um mig. Svo er líka OC endursýnt klukkan 16:10 og þá ætla ég að vera við tækið. Einnig hef ég góða bók að kúra með uppi í rúmi. Flugdrekahlauparinn, bendi öllum á hana. Megafinebók.
Sjáumst síðar lýðar!

posted by Gugga Rós at 2:41 pm |

4 June 2006


Áðan fór ég á Sólon. Það var eitt af fáum kaffihúsum opið á þessum mikla hátíðardegi. Annars fer ég nú ekki þangað venjulega. Ég var búin að sitja þarna í dágóða stund og farin að velta því fyrir mér hvað ég hefði svona mikið á móti þessum ágæta stað. Þá kom Björn Jörundur inn og einn af gestunum frussaði bjór á hann. Þá áttaði ég mig á því. Svona kemur ekki fyrir á gömlu góðu brennslunni. Né prikinu. Svona kemur bara fyrir á Sólon. Sólin var góð við mig á laugardaginn. En nú er hún farin aftur.
Ég hef ekki bloggað lengi lengi. Það var út af því að ég gat ekki sett myndir inn á. En nú virkar það aftur og þá blogga ég aftur.
Farin að skoða nýja húsið hennar Siggu.

posted by Gugga Rós at 9:58 pm |

About Me

My Photo
Name: Gugga Rós
Location: Reykjavík, Iceland

View my complete profile

Hinir töffararnir

  • Sigga sætasta!!
  • Auður Spánarfari
  • Glingur í hæsta gæðaflokki
  • Maroon Five fansite
  • Sagan endalausa
  • Arngunnur
  • Halla
  • Pælingar Kára
  • Beggi kempa
  • Grammar(practice)
  • Höslmaskínurnar
  • Sögur frá sólinni
  • Elín frænka
  • Lára frænka;)
  • Sigurlaug litla
  • Besti bekkur í öllum heiminum?
  • Biggi
  • Lena sæta
  • Blómaprinsessur
  • Palli bróðir
  • Myndir:)

    • Guggusíða
    • Siggusíða
    • Eddusíða
    • Soffusíða
    • Auðarsíða
    • Fyrri skrif

      • Gleðin tekur völd
      • Allt of fyndið í prófum
      • Hit me baby one more time...
      • Prófvæl
      • Britney
      • Summerland
      • Gossip Girl
      • Bush 2000
      • Framtíð Guðrúnar
      • If it hadn´t been for cotton-eye joe i´d been marr...

      Mánuðir

      • May 2004
      • June 2004
      • July 2004
      • August 2004
      • September 2004
      • October 2004
      • November 2004
      • December 2004
      • January 2005
      • February 2005
      • March 2005
      • April 2005
      • May 2005
      • June 2005
      • July 2005
      • August 2005
      • September 2005
      • October 2005
      • November 2005
      • December 2005
      • January 2006
      • February 2006
      • March 2006
      • April 2006
      • May 2006
      • June 2006
      • July 2006
      • August 2006
      • September 2006
      • October 2006
      • November 2006
      • December 2006
      • February 2007
      • July 2007
      • September 2007
      • February 2008
      • March 2008
      • April 2008
      • May 2008
      • June 2008
      • July 2008
      • August 2008
      • September 2008
      • October 2008
      • November 2008
      • December 2008

      Powered by Blogger